Thursday, 16 October 2008

Í sambandi við umheiminn á ný

Sæl öll sem nennið að lesa. Einhverjir hafa kvartað undan þessari bloggleysu hjá mér - sem er bara gott, því það þýðir að ég er ekki að skrifa fyrir "tómum augum" eins og maður segir á góðri íslensku. En hér er ég komin aftur, endurnærð eftir erfitt netfrí.
Það er reyndar tæp vika síðan við fengum netið loks í hús (og heimasíma), en það er líka búið að vera mikið að gera.

Eins og þeir sem þekkja mig vita, þá er ég einstaklega lagin við að hafa mikið að gera og hlaða á mig allt of mörgum verkefnum og ég hef ekki látið deigan síga í þeim efnum þrátt fyrir búferlaflutningana. Það sem er þó slæmt í því sambandi er að hér í Glasgow er sólarhringurinn mun styttri en í stórborginni Reykjavík. Jæja nú hafa víst margir hugsað: "Nei Adda Rut, vertu ekki svona misgáfuð kona, 24 klst eru alltaf 24 klukkustundir hvar sem er í heiminum!" En mín rök fyrir þessari staðhæfingu minni eru þau að þó 24 klst séu alltaf 24 klst, þá gera vegalengdir það að verkum að stundirnar 24 styttast. Þetta hljómar óttalega vitlaust þegar ég les þetta upphátt... Allavega, bottomlínan (ég er sko búin að live so long í útlöndum sko að ég bara forget the Icelandic language you know) er sú að það tekur svo langan tíma að ferðast á milli staða að það verður miklu minni tími eftir til að gera allt annað en sitja í lest eða strætó eða labba um allt. Það var það sem ég vildi segja.

Svo hef ég komist að því að ég er orðin dáldið gömul og þarf minnsta kosti 9 tíma nætursvefn til að lifa daginn af án 5 bolla af kaffi... Ekki gott. Sérstaklega ekki þar sem megnið af bekkjarfélögum mínum eru á aldrinum 18-21.

Í stuttu máli gengur vel. Það er fullt að gera í skólanum hjá mér, en það er líka rosalega gaman þar og ég er búin að læra fullt og á eftir að læra enn meira. Skrifa meira seinna um hvað ég er nákvæmlega að gera þar.

Ronja er ofsa dugleg, hún er farin að skilja miklu meira í enskunni, þó hún tali ekki mikið. Hún er búin að vera í fríi þessa viku, nokkurs konar miðsvetrarfrí (þau kalla það "october-week" hér) og því er Helga búin að vera með hana allan daginn. Þær eru búnar að sækja dansnámskeið í vikunni og leikhóp (play-group), sem er í boði hjá einhvers konar "ÍTR" Glasgowbúa og hafa skemmt sér konunglega. Ronja alveg elskar þessa danstíma - verst að þeir eru ekki í boði nema bara þessa viku held ég. Ætla samt að athuga það betur.
Hún er orðin ansi fær á píanóið þessi elska, ótrúlegt hvað hún er fljót að ná þessu, þvílíkt tónlistargen sem ræður ríkjum í þessu barni! Já.. ég var kannski ekki búin að blogga um þetta áður, eða hvað? Hún Ronja er s.s. að læra á píanó. Hún fer ca. 1x í viku (stundum sjaldnar útaf frídögum sem hafa komið upp) og kona sem heitir Anca kennir henni. Frábær stelpa sem er í mastersnámi í RSAMD (sami skóli og ég er í). Anca er yfir sig hrifin af Ronju og hæfileikum hennar og segist aldrei hafa hitt 5 ára barn sem hefur svona gott tóneyra og svona mikla hæfileika. Í fyrsta tímanum bað Ronja um að fá að heyra hvernig Anca getur spilað og um leið og Anca varð að bón hennar, sagði hún að hún hafi aldrei lent í þessu áður - að svona ungt barn hafi áhuga á að heyra hana spila.
Ronja er ekkert allt of hrifin af að gera tónstiga og fingraæfingar, en það er allt í lagi, við förum bara rólega í þetta og pössum (ég og Anca) að ýta ekkert á hana, svo hún missi ekki áhugann. Í síðasta tíma byrjaði Anca að kenna henni do-re-mí lagið úr Sound of Music og mín dama er bara búin að ná því strax! Reyndar með vinstri, en hægri kemur! Þar sem hún er örvhent getur verið dáldið erfitt að fá hana til að spila með hægri en það er engin ástæða til að vera of ýtinn með það frekar en annað.

Ég ætla að láta þetta nægja í bili, þarf að fara að sofa. Ég læt ekki líða eins langt á milli blogga næst, það er loforð!

6 comments:

Anonymous said...

Halló sæta kona...gott að heyra að allt gangi vel þarna í þínum útlöndum...hvernig er það, hvað ertu aftur að læra!!?? :s
Tillykke með litla tónlistarsjéníið og gott að henni gangi eins vel og mömmunni að falla inn í umhverfi og samfélag ; )
knús og kossar frá rainy Århus
Gyða

Harpa said...

hæhæ Gaman að geta aðeins njósnað um þig, og alveg brilliant hjá þér enskusletturnar, ekki nema von eftir svona langa fjarveru :)
sendi þér kreist með hugskeiti, miða á háls og herðar, grunar að veiti ekki af!!

Anonymous said...

Gott að heyra að allt gengur svona vel :) koss og knús á ykkur báðar!
Rakel

Adda Rut said...

Já Harpa mín, það veitir svo sannarlega ekki af, þú gast þér rétt til um það!! Axlirnar, hálsinn, allt bakið hreinlega og kálfarnir eru ekki í góðu standi... Það er of dýrt að fara í nudd í Glasgow, sérstaklega þegar maður þarf að skipta þessari verðlausu krónu! En ég reyni svona sjálfsnudd reglulega með tveimur tennisboltum bundnum inn í grysju... Þeir gera nokkuð gagn en þeir eru sko engin Harpa!!

Unknown said...

hæhæ Gott að heyra að gengur vel, var farin að óttast fréttaskortinn. Hlakka til að heyra hvað þú ert að bardúsa í náminu. Héðan er allt gott að frétta, kúlan er nú 20 vikna og farin að standa út í loftið:)
Heyrumst, Maren

Anonymous said...

hæ bestu mínar!! sendum knús til ykkar... ótrúlegt að alveg að koma nóvember og það styttist í að við hittumst... jeij!!!!!!!! hlakka óendanlega mikið til að fá ykkur heim;) gangi ykkur allt vel áfram þið eruð svo duglegar!!! 1000kossar seisa og bjössi